sunnudagur, mars 08, 2009

Vorblíða og grill

Vorið kom í gær með 22°C hita og smá sól.  Ég nýtti morguninn í útivist, fór út að skokka og mætti fjölda annarra skokkara sem var virkilega hvetjandi.  Það er fallegt einbýlishúsahverfi í næstu götu við blokkina þar sem ég bý og kjörið að skokka þar yfir hóla og hæðir.

Hans og Lotta sem hafa búið hér í fjölda ára buðu mér í grillveislu í gærkvöldi.  Á boðstólnum var gómsæt steik og mjög gott meðlæti. Ég átti góða dag og kvöldstund með þeim og Óla syni þeirra sem er aðeins yngri en Haraldur.  Við erum að hugsa um að flytja í sama hverfi og þau búa í og það verður gaman fyrir okkur að hafa félagsskap þeirra.  Hjálp þeirra við að koma mér fyrir hér í Baltimore er ómetanleg og ég þakka þeim kærlega fyrir hana.

Ég hef átt í smá bankavandræðum upp á síðkastið.  Það gekk mjög vel að opna reikning og sækja um kredit kort en þegar kom að því að leggja inn peninginn sem ég tók með til USA byrjuðu vandræðin. Ég stóð í biðröð hjá gjaldkera þegar útibússtjórinn kom til mín og spurði hvort ég væri ekki að fara að leggja inn pening.  Hann benti mér á ATM fyrir utan bankann þar sem ég gæti lagt inn pening og þá þyrfti ég ekki að bíða í röð í 10 mínútur.  Hann fór út með mér til að sýna mér hvernig þetta virkar.  Svo fór að tækið taldi peningana mína bandvitlaust og hann varð vitni að því.  Ég þurfti því að hringja í bankann og gera "claim" til að fá peninginn minn aftur. Þetta gerðist síðastliðinn fimmtudag og ég hef enn ekki fengið peninginn.  Ég held að peningarnir manns séu nú bara öruggari undir koddanum en í banka nú til dags.

miðvikudagur, mars 04, 2009

Kominn með U.S. símanúmer

Ég er kominn með bandarískt símanúmer og það er:
+1 443 9387 907

þriðjudagur, mars 03, 2009

Snjóstormur í Baltimore
Það snjóaði síðastliðna nótt í Baltimore og einnig í allan dag. Þetta kalla Bandaríkjamenn snjóstorm sem er góð ástæða til að mæta ekki til vinnu og loka skólum. Á íslenskan mælikvarða er þetta eins og brandari en snjórinn virðist alltaf koma Bandaríkjamönnum jafn mikið á óvart.

Í gær var mér boðið í grillveislu til samstarfsfélaga sem er af armenskum ættum. Hann bauð einnig Armenum sem eru að læra og vinna hjá Johns Hopkins. Í boði var armenskur matur og vín frá Georgíu, Rússlandi og Ítalíu. Við sátum frá klukkan 12-17 að snæðingi og áttum skemmtilega stund saman. Maturinn var mjög góður og þarna mátti einnig finna rétti frá Grikklandi og Texas.

Fyrsti vinnudagurinn gekk vel og var svona týpískur fyrsti vinnudagur, þ.e. maður vissi ekki alveg hvað maður átti af sér að gera. Ég náði þó að klára að fylla út pappíra til að geta fengið útborgað o.fl. Fólkið á rannsóknarstofunni er mjög vingjarnlegt og það verður eflaust gott að vinna hjá JH.

sunnudagur, mars 01, 2009

Fluttur til Baltimore USA

Þann 26. febrúar flutti ég til Baltimore USA, flaug til Boston og dvaldi þar eina nótt. Baltimore tók á móti mér með 18°C hita og mildu veðri. Hitti leigusalann minn sem er kærasta vinnufélaga míns hjá Johns Hopkins. Þau eru mjög vingjarnleg og fóru með mig í göngutúr um hverfið og buðu mér út að borða á Mexikanskan veitingastað, þar sem ég fékk væntanlega besta Buritos sem ég hef smakkað, enda þurftum við að bíða í röð eftir að fá borð. Íbúðin er stærri og snyrtilegri en ég hafði þorað að vona. Allt er nýmálað og íbúðin mjög hrein og fín. Hverfið sem ég bý í er við hliðina á Johns Hopkins University og það er "undergraduate campus" hér rétt hjá. Það er því nóg af veitingahúsum og kaffihúsum hér í nágrenninu og verslanir. Háskóla strætóinn sem fer með mig niður á spítala er svo í 2 mínútu fjarlægð, þannig að það verður auðvelt að ferðast á milli heimilis og vinnu.

Það er svolítið skrýtið að vera fluttur til Bandaríkjanna. Maður rekur sig á einhverja hluti á hverjum degi sem eru öðruvísi en heima. Fyrir utan blokkina sem ég bý í er stór ruslagámur. Í gær sá ég fólk með bænabönd biðjast fyrir við gáminn. Fólk stoppaði þarna með reglulegu millibili allan daginn. Ég fór að velta því fyrir mér fyrir hverjum það var að biðja. Fyrst hugsaði ég að kannski tryði fólkið því að það væru draugar í húsinu en mér fannst það frekar ólíklegt. Síðan grunaði mig að einhver hafi kannski verið myrtur þarna. Þegar Sarven og Alisa (leigusalarnir) komu að sækja mig til að fara í Target spurði ég þau út í þetta. Sarven sagði mér að það er Clinic neðst í blokkinni sem framkvæmir fóstureyðingar. Það er ástæðan fyrir því að þau biðja fyrir framan gáminn. Þetta er eitthvað sem ég held að maður muni aldrei sjá heima á Íslandi.

Svo fórum við í Target og Super Fresh sem er matvörubúð. Ég upplifði það sem flestir Evrópubúar gera þegar þeir fara að versla í USA, þ.e. valkvíða. Endalaust úrval af sömu vörunni. Þegar við komum að kassanum var sjálfsafgreiðsla, þ.e. tölva sem talaði við mann og lét mann skanna inn alla hlutina. Svipað og þeir voru að reyna að gera í Krónunni og Ikea. Þetta gekk nokkuð vel og var meira að segja smá gaman :)

Veðurfarið er ólíkt því sem maður á að venjast. Þegar ég kom í fyrradag var 18°C og rosalega þægilegt eins og íslenskt sumar. Í gær kólnaði niður í ca. 6°C og nú er kominn snjór. Vorið kemur víst svona, þ.e. fyrst koma einn og einn heitur dagur.

Marín og strákarni flytja svo hingað í byrjun júní og ég hlakka mjög mikið til þess að fá þau hingað. Ég ætla að vera búinn að finna íbúð fyrir þann tíma. Videosamtöl á Skype eru algjör snilld og gott að geta séð fjölskylduna meðan maður er svona langt í burtu.

Ég ætla að reyna að skrifa það helsta sem er að frétt héðan frá landi Obama á bloggið mitt sem hefur verið frekar óvirkt eftir að við fluttum heim frá Svíþjóð.

Kveðja,
Eiríkur

fimmtudagur, desember 25, 2008

Gleðilega hátíð!

Gleðilega hátíð og takk fyrir samverustundirnar á árinu sem er að líða. Megi gleði og gæfa fylgja ykkur á nýju ári. Hafið það sem allra best yfir jólin og áramótin.

Kveðja,
Eiríkur

mánudagur, ágúst 04, 2008

Hlaup dagsins:
Heiðskýrt og 13°C frábært veður til að skokka. Kláraði æfingarprógramið hjá Lance Armstrong og það var þokkalega erfitt. Planið er að ná 8 Km áður en prógramið klárast :)

sunnudagur, ágúst 03, 2008

Hlaup dagsins, 2. ágúst 2008
Hljóp klukkan 23:30 í rigningarúða og ca. 12°C hita. Það var orðið dimmt og ég þurfti að draga einkaþjálfarann (Kobba) minn áfram enda var hann farinn að sofa þegar ég fór með hann út.

Hljóp helminginn af workout með Lance Armstrong: Run longer.